Vélhjólaklúbbur austurlands
14.03.2008 16:50:30 / hognipall

Allir eru númer !

Búið er að úthluta númerum og er skráin birt á nýju blogg síðunni.http://vka.blog.is/blog/vka/

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 01:21:52 / hognipall

Changes.......................

Elsku stubbarnir mínir..................
Málið er að það er vonlaust að gera út blogg herna svo eg er buinn ad færa thetta á : http://vka.blog.is/blog/vka/ KOMASVO::::::::::::::::::::::::::::

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 23:44:18 / hognipall

Næst á dagskrá

Verið er að vinna í drögum að lögum og merki félagins þessa dagana og búið að finna borðalagða ábyrga aðila til að annast úrrátt félagsnúmera. Ef menn menn vilja vera viðstaddir úrdráttinn eða hafa ábendingar varðandi lög og merki þá endilega hafið samband við udirritaðann.

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 19:00:57 / NARCO

Það er sorglegt en... verður að vera.

Nú er svo mál með vexti að ég verð að selja hjólið mitt sem er Kawasaki Versys módel 2007 keypt í apríl að mig minnir. Þetta hjól hef ég nánast eingöngu notað í lengri ferðir um allt land.

ég hef látið sérsprauta það. er með orginal harðar töskur og bracket, tankhlíf og setti stærra gler á það. er einnig með hitaþolið cover. Þetta hjól var tilkeyrt samhvæmt bókinni og hafa olíuskipti verið ör og hvergi sparað með það litla viðhald sem til þurfti.

nú er von að menn sýni góð viðbrögð þar sem ég tel mig geta boðið gott verð.

Hægt er að hafa samband í síma 6965080 eða kgh@hive.is

Með kveðju: Kristján G.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 22:45:08 / hognipall

STJÓRNARFUNDUR

Stjórnarfundur haldinn á Eskifirði 25.11.2007. 

Stjórnin er núna þannig skipuð:   Einar formaður, Högni Ritari, Níels S, Ingvar og Benni meðstjórnendur. Formaður fer með fjármálin. 

1.Samþykkt að loknum umræðum að breyta nafni klúbbsins í “Drekar vélhjólaklúbbur austurlands” Enda er það nafnið sem bestar undirtektir hefur fengið bæði á félagsblogginu og á síðasta félagsfundi.

2.Samþykkt að bera undir félagsmenn 2 tillögur að félagsmerki, og ákveðið að nota félagsbloggið til þess.

3.Samþykkt að koma saman nothæfum lögum fyrir klúbbinn sem borin verði undir atkvæði á næsta aðalfundi og ákveðið að dagsetja hann fyrir lok apríl mánaðar.

4. Ákveðið að úthluta númerum á eftirfarandi hátt: Hlutlaus og ábyrgur aðili í viðurvist votta verði fenginn til að draga út nöfn félaga og verði fyrst dregið úr þeim félögum sem greitt hafa frá upphafi og síðan þeim sem greiddu aðeins 2007 fyrir eindaga. Fyrsta nafn fær númerið 1 næsta 2 osfrv.           


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 22:36:58 / hognipall

Haustið er líka tíminn........

Því var skotið að mér hér um daginn hvort að klúbburinn okkar væri dauður ! Ég var nú aldeilis ekki á því, núna er bara þessi tími ársins sem fer í önnur störf sem fylgja þessu göfuga áhugamáli (lesist Högni er byrjaður á þrifum að loknu sumri).

Alli fyrrum formaður segir í gestabókinni að hann sé vonandi á austurleið og á leið í hnakkinn aftur, við hljótum að fagna því enda verður þá maðurinn heimtur úr helju í tvennum skilningi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 23:03:09 / hognipall

Karlmenn hjóla !

Vildi bara minna á að það er miðvikudagur á morgun ! upplagt að mæta tímanlega hjá Einari svo hægt sé að purra af stað klukkan 8. Kjörið tækifæri að fá sér notalegann kvöldrúnt í blíðunni með alvöru bikerum , núna þegar leikararnir eru búnir að breiða yfir skellinöðrurnar sínar fyrir veturinn.

SHELL ESKIFJÖRÐUR BROTTFÖR KL:20.00. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 23:06:53 / hognipall

“Long way to France”

Tókum “Long way to France” hringinn allir fjórir félagarnir sem mættu á Eskifjörð í kvöld. Ljómandi fínt að rúnta þetta í rökkrinu með sauðféð á beit í vegköntunum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 12:38:23 / hognipall

Kennitölur félagsmanna.

Það vantar í félagatalið kennitölur eftirtalinna félagsmanna: Arnar Ingi, Björn Júl, Einar Óli, Ninni, Rósi, Sævar Steinars, Þorleifur Guðjóns og Þorvarður Hjálmars. 

Nú styttist í úthlutun númera og því er mikilvægt að menn séu full skráðir, ýtið endilega við þessum köppum og fáið þá til að senda mér kennitölurnar sínar. Eins ef þið hafið nýja félaga þá er rétti tíminn til að skrá þá núna. 

Sjáumst á miðvikudaginn á Eskifirði.


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 20:40:31 / hognipall

síðasti miðvikudagur ágúst mánaðar.

8 kallar mættu í gær og var svo mikil ánægja með mætinguna ofan af héraði að við fylgdum Benna heim !

SHELL ESKIFIRÐI MIÐVIKUDAGAR KL:20. ALVEG ÞAR TIL FER AÐ SNJÓA.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 21:52:10 / hognipall

Miðvikudagurinn

Helvíti fínn rúntur í gærkvöld !

Átta hjólarar mættu á Esk og var purrað saman yfir á Seyðis í kvöld húminu, ég fer ekkert útí frá hvaða stöðum mæting var best eða hvaðan hún var slökust (lesist engin). Er strax farin að hlakka til fyrir næsta miðvikudag, vona að sem flestir mæti þá.

MIÐVIKUDAGAR KL:20.00.    : SHELL ESKIFIRÐI.


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 11:01:29 / hognipall

...........R.I.P................

Jæja er ekki ráð að fara að sveifa þennan klúbb í gang ? Ég var að koma á klakkann aftur og mér veitir ekki af að liðka upp á mér bensín hendina , eru menn kannski búnir að hýsa fákana og breiða yfir þá í haust veðráttunni sem ríkir hérna ? 

Það litla sem skrifað hefur verið á bloggið okkar eru kvartanir yfir að ekkert sé skrifað !!! Ég skora á ykkur að finna einhvern sem hefur nenning í að hripa hérna einhverjar línur annað slagið. Ég er einn af fjórum sem aðgang hafa að síðunni en það væri fínt að setja fleiri í það, og þá sér í lagi einhverja sem snerta lyklaborðið sitt stöku sinnum. Svo væri líka tilbreyting að geta lesið eitthvað fleira hérna heldur en bullið uppúr mér !  

Hrista af sér slenið bræður og mæta á miðvikudagskvöld hjá Einari á Shellinu.:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 19:36:38 / hognipall

Franskir dagar !

Hvernig væri að purra saman um helgina ?

Hvað segið þið um kaffisopa á Sumarlínu á Fásk. T.d. um 5 leytið á laugardeginum ?

Svo ætla ég að renna á Borgarfjörð á laugardagskvöld og kíkja á tónleika og heim aftur um kvöldið, er ekki einhver með í það ?


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 20:59:21 / hognipall

Miðvikudagur 11. júlí kl: 20.00.

Miðvikudags kaffisopi hjá honum Einari á shellinu á Eskifirði er hægt og bítandi að festa sig í sessi, ég hef því miður ekki komist sjálfur ennþá en kemst vonandi með þegar blessuð sumarleyfin eru búin !

Var annas að koma úr rúmlega viku túr um m.a. vestfirði og mæli ég hiklaust með því svæði en þar er nóg af hlykjóttu óslitnu malbiki og frábærum malarvegum að ekki sé nú minnst á að umferðin er sáralítil og löggæslan mjög hæfileg.

Mæli með hópkeyrslu um Franska daga. Hvað segja menn um það ? Þá getur Smári hjálpað mér að finna þessa "Karólínu" sem hann drakk kaffi hjá um daginn !


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 22:11:42 / hognipall

Miðvikudags hittingurinn !

Ekki var hún beysin mætingin í kvöld !

En hvað um það, allir að mæta á Shell Eskifirði á næsta miðvikudag kl 20.00. Þar er kjörið tækifæri til að koma sér saman um landsmóts tilhögun um aðra helgi !

Takið endilega þátt í skoðana könnuninni hérna bensín megin á síðunni !


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti